103
Ég vil lofa Guð af öllu hjarta. Ég vil vegsama Drottin og minnast allra velgjörða hans við mig. Hann fyrirgefur syndir mínar. Hann læknar mig. Hann frelsar mig frá dauða. Hann umlykur mig náð og miskunn. Hann hleður á mig gjöfum! Hann endurnýjar lífsþrótt minn og gerir mig sterkan sem örn. Hann réttir hlut þeirra sem misrétti þola. Hann opinberaði Móse vilja sinn og hver hann væri og einnig þjóð sinni Ísrael.
Hann er miskunnsamur og mildur við þá sem eiga það ekki skilið. Hann er seinn til reiði og fullur náðar og kærleika.
Hann er ekki langrækinn né eilíflega reiður. 10 Hann hefur ekki refsað okkur fyrir syndir okkar eins og sanngjarnt var 11 því að miskunn hans við þá sem óttast hann og heiðra, er eins há og himinninn er yfir jörðinni. 12 Hann fleygði burt syndum okkar og það langt, já, eins langt og austrið er frá vestrinu! 13 Eins og faðir miskunnar börnum sínum, eins hefur Drottinn miskunnað þeim sem óttast hann, 14 því hann veit að við erum bara dauðlegir menn 15 og að ævi okkar er stutt og líður hratt. Við erum eins og jurt sem vex og blómgast 16 en skrælnar fyrr en varir í brennheitum vindinum, deyr og gleymist.
17-18  En miskunn Drottins endist að eilífu fyrir þá sem reiða sig á orð hans og óttast hann. Og hjálpræði hans nær til barnabarnanna ef við höldum sáttmála hans og hlýðum boðum hans.
19 Drottinn hefur reist sér hásæti á himnum og þaðan stjórnar hann heiminum. 20 Lofið Drottin, þið voldugu englar sem framkvæmið skipanir hans og takið við fyrirmælum hans. 21 Lofið Drottin, þið hersveitir englanna sem framfylgið vilja hans.
22 Öll verk Drottins, um víða veröld, lofa hann! Einnig ég vil lofa hann!