104
1-2  Ég lofa Drottin! Drottinn, þú Guð minn, þú ert undursamlegur! Þú ert íklæddur hátign og dýrð og umlukinn ljósi! Þú þandir út himininn eins og dúk og dreifðir um hann stjörnunum. Þú mótaðir þurrlendið og rýmdir fyrir hafinu. Þú gerðir ský að vagni þínum og ferð um á vængjum vindarins. Englarnir eru erindrekar þínir og eldslogar þjóna þér.
Undirstöður heimsins eru traustar, þær eru þitt verk, og þess vegna haggast hann ekki. Þú lést vatnsflóð ganga yfir jörðina og hylja fjöllin. 7-8  Og þegar þú bauðst, safnaðist vatnið saman í höfunum, fjöllin risu og dalirnir urðu til. Þú settir sjónum sín ákveðnu mörk svo að hann skyldi aldrei aftur flæða yfir þurrlendið.
10 Þú settir lindir í dalina og lækir renna um fjöllin. 11 Þeir eru dýrunum til drykkjar og þar svalar villiasninn þorsta sínum. 12 Þar gera fuglar sér hreiður og söngur þeirra ómar frá trjánum. 13 Hann sendir regn yfir fjöllin svo að jörðin ber sinn ávöxt. 14 Safaríkt grasið vex að boði hans og er búfénu til fæðu. En maðurinn yrkir jörðina, ræktar ávexti, grænmeti og korn, 15 einnig vín sér til gleði, olíu sem gerir andlitið gljáandi og brauð sem gefur kraft. 16 Drottinn gróðursetti sedrustrén í Líbanon, há og tignarleg, 17 og þar byggja fuglarnir sér hreiður, en storkurinn velur kýprustréð til bústaðar. 18 Steingeiturnar kjósa hin háu fjöll, en stökkhérarnir finna sér stað í klettum.
19 Tunglið settir þú til að afmarka mánuði, en sólina til að skína um daga. 20 Myrkur og nótt eru frá þér komin, þá fara skógardýrin á kreik. 21 Þá öskra ljónin eftir bráð og heimta æti sitt af Guði. 22 Þegar sólin rís draga þau sig í hlé og leggjast í fylgsni sín, 23 en mennirnir ganga út til starfa og vinna allt til kvölds. 24 Drottinn, hvílík fjölbreytni í öllu því sem þú hefur skapað! Allt á það upphaf sitt í vísdómi þínum! Jörðin er full af því sem þú hefur gert!
25 Framundan mér teygir sig blikandi haf, iðandi af alls konar lífi! 26 Og sjá! Þarna eru skipin! Og þarna hvalirnir! – þeir leika á alls oddi! 27 Allar skepnur vona á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma. 28 Þú mætir þörfum þeirra og þau mettast ríkulega af gæðum þínum.
29 En snúir þú við þeim bakinu er úti um þau. Þegar þú ákveður, deyja þau og verða að mold, 30 en þú sendir líka út anda þinn og vekur nýtt líf á jörðinni.
31 Lof sé Guði að eilífu! Drottinn gleðst yfir verkum sínum!
32 Þegar hann lítur á jörðina, skelfur hún og eldfjöllin gjósa við snertingu fingra hans.
33 Ég vil lofsyngja Drottni svo lengi sem ég lifi, vegsama Guð á meðan ég er til! 34 Ó, að ljóð þetta mætti gleðja hann, því að Drottinn er gleði mín og fögnuður.
35 Ó, að misgjörðarmenn hyrfu af jörðinni og að óguðlegir yrðu ekki framar til. En Drottin vil ég vegsama að eilífu! Hallelúja!