105
Þakkið Drottni fyrir öll hans undursamlegu verk og segið frá þeim meðal þjóðanna. Syngið fyrir hann, leikið fyrir hann og segið öllum frá máttarverkum hans. Lofið og vegsamið hans heilaga nafn. Þið sem tilbiðjið Drottin, fagnið!
Leitið hans og máttar hans, og keppið eftir að kynnast honum!
5-6  Minnist dásemdarverkanna sem hann vann fyrir okkur, sína útvöldu þjóð, afkomendur Abrahams og Jakobs, þjóna hans. Munið þið hvernig hann útrýmdi óvinum okkar? Hann er Drottinn, Guð okkar. Elska hans blasir við hvar sem er í landinu. 8-9  Þótt þúsund kynslóðir líði, þá gleymir hann ekki loforði sínu, sáttmála sínum við Abraham og Ísak. 10-11  Þennan sáttmála endurnýjaði hann við Jakob. Þetta er hans eilífi sáttmáli við Ísrael: „Ég mun gefa ykkur Kanaansland að erfð.“ 12 Þetta sagði hann meðan þeir voru enn fámennir, já mjög fáir, og bjuggu sem útlendingar í landinu. 13 Síðar dreifðust þeir meðal þjóðanna og hröktust úr einu landinu í annað. 14 Samt leyfði hann engum að kúga þá og refsaði konungum sem það reyndu. 15 „Snertið ekki við mínum útvöldu og gerið spámönnum mínum ekkert mein.“ sagði hann.
16 Og hann lét hungursneyð koma yfir Kanaansland og allur matur gekk til þurrðar. 17 Þá sendi hann Jósef í ánauð til Egyptalands, þjóð sinni til bjargar. 18 Þeir hlekkjuðu hann og þjáðu, 19 en Guð lét hann þola eldraunina og batt að lokum enda á fangavist hans. 20 Og faraó sendi eftir Jósef og lét hann lausan, 21 og setti hann svo yfir allar eigur sínar. 22 Þá hafði Jósef vald til að fangelsa höfðingja og segja ráðgjöfum konungs til.
23 Síðar kom Jakob (Ísrael) til Egyptalands og settist þar að með sonum sínum. 24 Þau ár fjölgaði Ísrael mjög, já svo mjög að þeir urðu fjölmennari en Egyptar, sem réðu landinu. 25 En Guð sneri hjörtum Egypta gegn Ísrael, þeir hötuðu þá og hnepptu í þrældóm.
26 Þá útvaldi Guð Móse sem fulltrúa sinn og Aron honum til hjálpar. 27 Hann gjörði tákn meðal Egypta og vakti þannig ótta hjá þeim. 28 Þeir fóru að skipun Drottins og hann sendi myrkur yfir landið, 29 breytti ám og vötnum í blóð svo að fiskurinn dó.
30 Þá kom flóðbylgja af froskum – þeir voru um allt, jafnvel í svefnherbergi konungs! 31 Að skipun Móse fylltist landið af mývargi og flugum. 32 Í stað regns dundi banvænt hagl yfir landið og eldingar skelfdu íbúana. 33 Vínviður þeirra og fíkjutré drápust, féllu brotin til jarðar. 34 Þá bauð hann engisprettum að naga allan grænan gróður 35 og eyðileggja uppskeruna, – hvílík plága! 36 Þá deyddi hann frumburðina, – elsta barn í hverri egypskri fjölskyldu – þar fór framtíðarvonin. 37 Og Drottinn leiddi sitt fólk heilu og höldnu út úr Egyptalandi, hlaðið gulli og silfri. Ekkert þeirra var veikt eða vanmáttugt. 38 Og Egyptar voru því fegnastir þegar Ísraelsmenn héldu á brott, því að þeir óttuðust þá.
39 Um daga breiddi Guð út ský og hlífði þeim gegn brennheitri sólinni og um nætur lýsti hann þeim leiðina með eldstólpa. 40 Þeir báðu um kjöt og hann sendi þeim lynghænsni og brauð gaf hann þeim – manna, brauð frá himni. 41 Hann opnaði klettinn og vatnið spratt fram og varð að læk í eyðimörkinni. 42 Hann minntist loforðs síns til Abrahams, þjóns síns, 43 og leiddi sitt útvalda fólk fagnandi út úr Egyptalandi. 44 Og hann gaf þeim lönd heiðingjanna, sem stóðu í fullum blóma með þroskaða uppskeru og þeir átu það sem aðrir höfðu sáð til. 45 Allt skyldi þetta hvetja Ísrael til trúfesti og hlýðni við lög Drottins.
Hallelúja!