111
1-2  Hallelúja! Ég þakka Guði máttarverk hans, já, í áheyrn og augsýn allrar þjóðarinnar. Allir sem vilja, íhugi þetta ásamt mér. Því að máttarverkin lýsa mikilleika hans, hátign og eilífum kærleika.
Hver getur gleymt dásemdarverkum hans, miskunn hans? Hann annast þarfir þeirra sem honum treysta og gleymir ekki loforðum sínum. Hann sýndi mátt sinn er hann gaf þjóð sinni landið Ísrael – land sem margar þjóðir byggðu. Allt gerir hann af trúfesti og réttlæti og öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg og góð, gefin í kærleika og af réttvísi – þau munu standa að eilífu. Hann hefur frelsað þjóð sína og gert við hana eilífan sáttmála. Heilagt og óttalegt er nafn Drottins.
10 Hvernig öðlast menn visku? Með því fyrst að óttast og heiðra Guð og síðan með því að halda lög hans. Lofað sé nafn hans að eilífu.