112
Dýrð sé Guði! Að trúa á Guð og treysta honum veitir ómælda blessun. Sæll er sá maður sem hefur unun af boðorðum hans.
Börn hans njóta hvarvetna heiðurs, því að góður arfur eflir göfugan mann. Sjálfur býr hann við auðlegð og góðverk hans gleymast ekki. Réttlátum er hann ljós í myrkri – miskunn hans og gæska eru augljós. Sá mun blessun hljóta sem er góðgjarn og fús að lána og framkvæmir verk sín með réttvísi.
Slíkur maður verður ekki fórnarlamb illra atvika. Umhyggja Guðs fyrir honum verður umræðuefni þeirra sem þekkja hann. Hann óttast ekki vondar fréttir, né kvíðir því sem koma skal. Hann er öruggur og veit að Drottinn annast hann. Þess vegna óttast hann ekkert og horfir á óvini sína með stakri ró. Hann hefur miðlað mildilega og gefið fátækum. Góðverk hans munu ekki gleymast. Hann mun njóta vinsælda og hafa áhrif.
10 Þetta sjá óguðlegir og þeim gremst. Þeir munu gnísta tönnum og tortímast og óskir þeirra rætast ekki.