120
Ég ákalla Guð í neyð minni og hann hjálpar mér.
Drottinn, frelsaðu mig frá svikum og prettum. Þú lygatunga, hver verða örlög þín? Oddhvassar örvar munu stinga þig og glóandi kol brenna þig!
5-6  Hvílík mæða að búa með óguðlegum! Ég er þreyttur á þeim sem hata friðinn. Ég þrái frið, en þeir elska stríð og láta ráð mín sem vind um eyrun þjóta.