121
Ég horfi til fjallanna, þar sem Jerúsalem rís. Hvaðan skyldi ég fá hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar! 3-4  Hann mun aldrei láta mig hrasa eða falla. Hann gætir mín öllum stundum og sefur ekki á verðinum.
Sjálfur Drottinn gætir þín! Hugleiddu það! Hann verndar þig gegn öllu illu og er þér alltaf nær. Hann verndar þig jafnt daga sem nætur. Hann frelsar þig frá illu og heldur í þér lífinu. Hann hefur augun á þér hvort sem þú gengur út eða inn, já hann varðveitir þig alla daga og að eilífu.