122
Ég varð glaður þegar sagt var við mig: „Komdu! Förum í musterið, hús Drottins!“
2-3  Við erum stödd í Jerúsalem og borgin er full af fólki. Allur Ísrael – þjóð Drottins – er kominn til að tilbiðja og lofa Drottin samkvæmt reglu lögmálsins. Sjáið! Þarna eru dómararnir í borgarhliðinu, þeir skera úr deilumálum fólksins.
Biðjið þess að friður haldist í Jerúsalem og að þeir sem hana elska njóti heilla og hamingju. Ég bið að friður ríki umhverfis þig og hagsæld sé í höllum þínum, já, vegna bræðra minna og vina sem hér búa. Ég bið um hamingju þér til handa, Jerúsalem, vegna musteris Drottins sem í þér er.