124
Hefði það ekki verið Drottinn sem með okkur var þetta skulu allir í Ísrael játa – hefði það ekki verið Drottinn, 2-3  þá hefðu óvinirnir gleypt okkur lifandi, útrýmt okkur í heiftarreiði sinni. 4-5  Við hefðum skolast burt á augabragði, horfið í strauminn.
Lofaður sé Drottinn, hann bjargaði okkur úr klóm þeirra. Við sluppum eins og fugl úr snöru veiðimanns. Snaran gaf sig og við flugum burt!
Hjálp okkar kemur frá Drottni sem skapaði himin og jörð.