125
Þeir sem treysta Drottni eru eins og Síonfjall, þeir haggast ekki.
Fjöllin umhverfis Jerúsalem eru henni til verndar, eins er Drottinn, hann umlykur og verndar sitt fólk. Ekki skulu óguðlegir drottna yfir trúuðum, né réttlátir þvingaðir til illverka.
Ó, Drottinn, gerðu vel við þá sem góðir eru, þá sem leitast við að gera vilja þinn, en útrýmdu illgjörðamönnum. Láttu frið og velgengni ríkja í Ísrael.