126
Þegar Drottinn flutti þjóð sína aftur til Jerúsalem, heim úr herleiðingunni, þá héldum við að okkur væri að dreyma! Við sungum og hlógum af gleði. Þá sögðu heiðnu þjóðirnar: „Drottinn hefur gert ótrúlega hluti fyrir þá!“ Já, undursamlega hluti! Hvílíkt undur! Hvílík gleði! Hresstu okkur nú Drottinn, já gefðu okkur kröftuga gróðrarskúr!
Þeir sem sá með tárum skulu uppskera með gleðisöng. Grátandi bera þeir sæðið til sáningar, en syngjandi koma þeir aftur og bera kornbindin heim!