32
1-2  Hvílík náð að fá syndir sínar fyrirgefnar! Það er dásamlegt þegar afbrotin eru strikuð út! En sá léttir hverjum játandi syndara að heyra Drottin segja: „Ég sýkna þig.“
Sú var tíðin að ég þrjóskaðist við og neitaði að iðrast. En synd mín kvaldi mig og nagaði öllum stundum. Ég var friðlaus bæði nætur og daga og fann að Drottinn áminnti mig. Styrkur minn þvarr eins og lækur sem þornar á heitu sumri. Að lokum játaði ég synd mína fyrir þér, viðurkenndi afbrotin. Ég sagði: „Ég vil játa það allt fyrir Drottni,“ og þá fyrirgafstu mér! Sekt mín var strikuð út!
Þess vegna segi ég: Þú sem trúir, játaðu synd þína strax fyrir Guði, já, strax og samviskan angrar þig. Notaðu tímann meðan fyrirgefning Guðs stendur þér til boða. Annars vofir dómurinn yfir þér.
Þú ert skjól mitt í andstreymi lífsins og lausn í nauðum og vanda. Með frelsisfögnuði umlykur þú mig. Drottinn segir: „Ég vil fræða þig og vísa þér veginn gegnum lífið. Ég vil gefa þér ráð og fylgjast með framför þinni. Vertu ekki eins og þrjóskur hestur! Með taum og beisli verður að temja hann.“
10 Miklar eru þjáningar syndugs manns, en þá sem treysta Drottni umlykur hann elsku. 11 Gleðjist yfir Guði, þið sem á hann trúið, og rekið upp fagnaðaróp, þið sem honum hlýðið!