33
Gleðjist og fagnið fyrir Drottni, þið hans trúuðu, því að lofsöngur hæfir réttlátum! Leikið af þrótti á alls konar hljóðfæri og lofið Drottin. Lofsyngið honum með nýjum söngvum. Sláið strengina ákaft og hrópið fagnaðaróp!
Því að orð Drottins er áreiðanlegt – því má treysta. Öll hans verk eru í trúfesti gjörð. Hann elskar allt sem rétt er og gott, kærleikur hans umvefur heiminn. 6-7  Það var orð Drottins sem skapaði himininn og alla hans stjörnumergð. Og höfunum safnaði hann saman og bjó þeim sinn rétta stað.
Allir heimsbúar – bæði háir og lágir – óttist Drottin, og nálgist hann með lotningu. Því að hann talaði og þá stóð heimurinn þar! Orð hans hljómaði og veröldin varð til!
10 Drottinn ónýtir áform þjóða sem gegn honum rísa 11 en fyrirætlanir hans standa að eilífu, frá kynslóð til kynslóðar.
12 Sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði, það fólk sem hann hefur kosið eignarlýð sinn. 13-15 Drottinn lítur niður af himni, horfir á mannanna börn. Hann hefur myndað hjörtu þeirra og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra.
16-17  Velbúinn her tryggir konungi ekki sigur og ofurafl eitt stoðar lítið. Stríðshestur er ekki til að reiða sig á, styrkur hans einn frelsar engan. 18-19  En, – augu Drottins vaka yfir þeim sem óttast hann, þeim sem reiða sig á elsku hans. Hann frelsar þá frá dauða, varðveitir líf þeirra á neyðarstund.
20 Ég hef sett traust mitt á Drottin. Enginn getur hjálpað nema hann, hann er skjöldur og vígi! 21 Hans vegna gleðjumst við og fögnum. Hans heilaga nafni treystum við. 22 Miskunn þín Drottinn umvefji okkur. Við vonum á þig.