67
1-2  Ó, veittu okkur miskunn þína og náð! Leyfðu okkur að sjá þig og kærleika þinn. Leyfðu öllum mönnum að fá að kynnast þér og þekkja hjálpræði þitt. Allar þjóðir skulu lofa Drottin. Þær skulu fagna og gleðjast, því að þú færir þeim réttlæti, og leiðir þær um réttan veg. Allur heimurinn lofi þig, ó Guð! Já, allar þjóðir í heiminum flytji þér þakkargjörð! 7-8  Því að uppskera jarðarinnar varð mikil og Guð, hefur blessað okkur ríkulega. Og hann blessi okkur áfram svo að allar þjóðir megi óttast hann og elska.