68
1-2  Þegar Guð rís á fætur þá tvístrast óvinir hans! Þeir sem hata hann flýja sem mest þeir mega. Blástu þeim burt eins og reyk í vindi! Bræddu þá eins og vax í eldi! Þannig munu óguðlegir tortímast fyrir Guði.
En hinir trúuðu skulu fagna. Þeir kætist og gleðjist og lofsyngi Guði! Hefjið lofsöng til hans sem ekur um á skýjunum. Nafn hans er Drottinn! Gleðjist og fagnið í nærveru hans. Hann er faðir föðurlausra og verndari ekkna, hann er heilagur. Hann lætur hinn einmana komast heim aftur og leiðir fanga út í frelsið á ný. Þar verður sungið og fagnað! En uppreisnarmenn skulu búa við sult og seyru.
Guð, þegar þú leiddir þjóð þína gegnum öræfin, þá skalf jörðin og himnarnir nötruðu. Sínaífjall hneigði sig fyrir þér af virðingu og ótta – þér Guði Ísraels. 10-11  Þú, Guð, sendir regnskúrir yfir land þitt, hresstir það og endurnærðir. Þar settist þjóð þín að. Þú gafst hinum hrjáðu heimili og skjól.
12-13 Drottinn lætur orð sín rætast og þegar hann talar flýja óvinirnir. Konurnar sem heima eru flytja gleðifrétt: „Óvinaherinn er flúinn, þeir sem vildu eyða öllu og umturna!“ Og konur í Ísrael skipta herfanginu. 14 Þær hylja sig með gulli og silfri, rétt eins og dúfan vængjum sínum! 15 Þegar Guð stökkti óvinunum á flótta þá snjóaði á Salmonsfjalli.
16-17  Þið voldugu Basanfjöll, þið illkleifu tindar! Hvers vegna horfið þið með öfund til Síonar – fjallsins sem Drottinn hefur kosið sér til bústaðar? 18 Með þúsundum vagna lagði Drottinn upp frá Sínaí og kom til síns heilaga musteris á Síon. 19 Hann kleif fjöllin, tók með sér fjölda bandingja og veitti viðtöku gjöfum frá mönnum, jafnvel uppreisnarmönnum. Og nú býr hann hér!
20 Lofaður sé Drottinn! Hann leiðir okkur dag eftir dag og hjálpar í öllum vanda. 21 Guð er hjálpræðisguð. Hann er alvaldur og bjargar frá dauða. 22 En óvinum sínum eyðir hann, þeim sem þrjóskast og halda áfram á glæpabraut. 23 Hann segir: „Komið!“ við óvini þjóðar sinnar, þá sem fela sig til fjalla eða í hafdjúpunum. 24 Þjóð hans vill troða þá undir, ganga í blóði þeirra og gefa hundum hræ þeirra.
25 Guð, konungur minn, gengur inn til musteris síns. 26 Fremst fara söngvarar, þá hljóðfæraleikarar og stúlkur sem slá taktinn. 27 Allur Ísrael gleðjist með Guði, uppsprettu Ísraels á þessum hátíðardegi. 28 Fremst fer Benjamínsætt, hún er minnst. Þá koma prinsar og öldungar Júda og síðan höfðingjar Sebúlons og Naftalí. 29 Sýn þú, Guð, mátt þinn og styrk, því að mikla hluti hefur þú gert.
30 Konungar jarðarinnar gefa gjafir til musteris þíns í Jerúsalem. 31 Ávíta þú óvini okkar, Drottinn. Færðu þá hingað, sneypta og berandi skattinn! Tvístraðu þeim sem efna til ófriðar. 32 Egyptar sendi gull og Bláland fórni höndum í lotningu til Guðs. 33 Syngið frammi fyrir Drottni, þið konungsríki jarðarinnar, syngið honum lofgjörðarsöng, 34 honum, Guði eilífðar, sem ekur um himininn og talar með þrumuraust svo að undir tekur.
35 Drottinn hefur máttinn! Dýrð hans ljómar yfir Ísrael og hans voldugu verk birtast á himninum. 36 Við krjúpum fyrir honum í lotningu og ótta í musteri hans. Ísraels Guð veitir þjóð sinni mátt og megin. Lofaður sé Guð!