11
Guð hefur ekki algjörlega hafnað Gyðingum
Þá vil ég spyrja: Hefur Guð hafnað þjóð sinni – Gyðingunum – og yfirgefið þá? Nei, alls ekki. Minnist þess að ég er sjálfur Gyðingur. Ég er afkomandi Abrahams og af ættkvísl Benjamíns. 2-3  Nei, Guð hefur ekki yfirgefið þjóð sína, sem hann tók að sér í upphafi. Munið þið hvað Gamla testamentið segir um þetta? Spámaðurinn Elía kvartaði við Guð vegna Gyðinganna og sagði að þeir hefðu drepið spámennina og rifið niður ölturu Guðs. Elía hélt því fram að hann væri eini maðurinn í öllu landinu sem enn elskaði Guð, og að nú væri sóst eftir lífi hans. Munið þið hverju Guð svaraði? Hann sagði: „Nei, þú ert ekki sá eini sem eftir er. Ennþá eru sjö þúsund aðrir, sem elska mig og hafa ekki tilbeðið hjáguðina!“
Eins er þetta enn í dag. Ekki hafa allir Gyðingar snúið baki við Guði. Fáeinir hafa frelsast vegna þess að Guð var þeim náðugur og tók þá að sér, og fyrst það er gæsku Guðs að þakka, þá er það ekki vegna þeirra eigin góðverka. Ef svo væri, þá væri lífið með Guði – þessi óverðskuldaða gjöf – ekki lengur óverðskulduð, því að þá gætu menn unnið sér fyrir henni með góðverkum.
Sannleikurinn er þessi: Gyðingarnir sóttust eftir velþóknun Guðs, en aðeins fáeinir þeirra öðluðust hana – þeir sem Guð valdi – en augu hinna hafa blindast. Það er þetta sem Gamla testamentið á við þegar það segir að Guð hafi lokað augum þeirra og eyrum, svo að þeir gætu ekki skilið okkur þegar við segjum þeim frá Kristi. Og þannig er þetta enn í dag.
Einmitt þetta átti Davíð konungur við þegar hann sagði:
„Leyfum þeim að halda að allsnægtir og önnur gæði séu staðfesting þess að Guð hafi velþóknun á þeim. Öll þessi gæði snúist gegn þeim og verði þeim til falls. 10 Augu þeirra lokist og bogni þeir undan sinni eigin byrði.“
Ekki endanleg höfnun
11 Þýðir þetta að Guð hafi hafnað Gyðingaþjóðinni fyrir fullt og allt? Nei, vissulega ekki! Ætlun hans var að gefa heiðingjunum hjálpræði sitt, til þess að Gyðingarnir yrðu afbrýðisamir og tækju að sækjast eftir hjálpræði Guðs fyrir sjálfa sig. 12 Fyrst allur heimurinn hefur notið góðs af því að Gyðingarnir hrösuðu um hjálpræði Guðs og höfnuðu því, þá mun mikil blessun síðar falla heiminum í skaut, þegar Gyðingarnir snúa sér einnig til Krists! 13 Eins og þið vitið, hefur Guð sent mig sem sérstakan erindreka sinn til ykkar heiðingjanna. Á þetta vil ég leggja áherslu og jafnframt minna Gyðinga á það eins oft og ég get, 14 til þess að ég, ef mögulegt er, geti fengið þá til að sækjast eftir því sem þið heiðingjarnir hafið eignast, svo að einhverjir þeirra mættu frelsast. 15 Þegar Gyðingarnir höfnuðu hjálpræðinu sem Guð bauð þeim, sneri hann sér að öðrum þjóðum heimsins og bauð þeim hjálpræði sitt. Þess vegna er það mikið gleðiefni er Gyðingar verða kristnir, það er líkast því að dauður maður lifni við.
16 Abraham og spámennirnir tilheyra þjóð Guðs og það gera afkomendur þeirra einnig – séu rætur trésins heilar, verða greinarnar það líka.
17 Sumar greinarnar á tré Abrahams (sumir Gyðinganna) voru sniðnar af og síðan voruð þið, heiðingjarnir, sem voruð greinar af villtu olíutré, græddir á tré Abrahams. Þið hafið þar með hlotið blessunina sem Guð lofaði Abraham og afkomendum hans, og takið nú til ykkar, ásamt okkur, þá ríkulegu næringu sem útvalda olíutréð gefur.
18 En gætið þess að stæra ykkur ekki af því að hafa verið græddir á tré, í stað greinanna sem skornar voru af. Minnist þess að eina ástæðan fyrir upphefð ykkar er að nú hafið þið verið græddir á tré Guðs. – Munið að þið eruð aðeins greinar en ekki rótin.
19 „Já, en,“ segir þú kannski, „þessar greinar voru skornar af til að rýma fyrir mér og ég hlýt því að hafa eitthvað til míns ágætis.“
20 Gætið ykkar! Munið að þessar greinar, Gyðingarnir, voru fjarlægðar vegna þess að þær trúðu ekki Guði, en þið trúið honum og þess vegna eruð þið þarna. Verið ekki stolt, verið heldur auðmjúk, þakklát og gætin, 21 því að fyrst Guð hlífði ekki upphaflegu greinunum, þá kann svo að fara að hann hlífi ykkur ekki heldur. 22 Munið að Guð er bæði vægur og strangur. Hann er strangur við þá sem óhlýðnast og sníður þá af, en ef þið haldið áfram að elska hann, þá mun hann miskunna ykkur. 23 Ef Gyðingar snúa sér frá vantrúnni og koma til Guðs, þá mun hann græða þá við stofninn á ný, því að til þess hefur hann mátt.
24 Fyrst Guð er fús að taka ykkur að sér, ykkur sem voruð fjarri honum – voruð greinar á villtu olíutré – og græða ykkur á sitt eigið gæðatré – en slíkt er mjög óvenjulegt – þá hljótið þið að skilja löngun hans til að setja Gyðingana aftur þar sem þeir voru í upphafi. 25 Kæru vinir, ég vil að þetta sé ykkur ljóst svo að stoltið nái ekki tökum á ykkur. Satt er það að sumir Gyðinganna hafa risið gegn gleðiboðskap Krists, en það mun breytast þegar allir heiðingjarnir hafa tekið á móti Kristi. 26 Þá mun allur Ísrael frelsast. Munið þið hvað spámennirnir sögðu um þetta?
„Frelsari mun koma fram í Síon og hann mun snúa Gyðingunum frá öllum óguðleika. 27 Þá mun ég nema burt syndir þeirra, eins og ég hafði lofað.“
28 Margir Gyðingar eru andsnúnir gleðiboðskapnum – þeir hata hann. En hatur þeirra hefur orðið ykkur til gagns, því að þess vegna hefur Guð gefið ykkur heiðingjunum gjafir sínar. En þrátt fyrir þetta elskar Guð Gyðingana, vegna loforðanna sem hann gaf Abraham, Ísak og Jakob. 29 Guð mun aldrei sjá eftir gjöfum sínum, né iðrast köllunar sinnar, því að hann gengur aldrei á bak orða sinna. 30 Áður fyrr voruð þið andsnúnir Guði, en þegar Gyðingarnir höfnuðu gjöfum hans, sneri hann sér að ykkur með miskunn sína. 31 Nú eru Gyðingarnir í uppreisn gegn Guði, en seinna munu þeir njóta með ykkur þeirrar miskunnar hans sem þið hafið öðlast. 32 Guð hefur gefið þá alla syndinni á vald til að hann geti miskunnað þeim öllum. 33 Við eigum undursamlegan Guð! Mikil er viska hans, þekking og auðlegð! Hvernig eigum við að skilja ákvarðanir hans og aðferðir? 34 Hvert okkar þekkir hugsanir Drottins? Hver getur ráðlagt Guði eða leiðbeint honum? 35 Hver hefur að fyrra bragði gefið honum svo mikið að hann geti krafist einhvers í staðinn? 36 Allt er komið frá Guði. Allt er orðið til fyrir mátt hans og allt skal verða honum til vegsemdar. Honum sé dýrð um alla eilífð!