12
Lifandi fórn til Guðs
Kæru vinir, bræður og systur, ég minni ykkur á að fyrst Guð hefur miskunnað ykkur þá skuluð þið gefast Guði heilshugar sem lifandi, heilög og honum þóknanleg fórn. Það er skynsamleg guðsdýrkun.
Takið ekki framkomu og lífsvenjur heimsins ykkur til fyrirmyndar. Lifið sem nýir menn! Látið orð Guðs og anda hans móta hugarfar ykkar og alla framkomu ykkar, orð og verk. Ef þið gerið þetta, þá munuð þið fá að reyna og þekkja vilja Guðs sem er hið góða, fagra og fullkomna.
Þjónið Guði með andlegum gjöfum
Nú ætla ég, sem er sendiboði Guðs, að gefa ykkur hverju og einu þessa viðvörun: Metið hæfileika sjálfra ykkar af réttsýni, í samræmi við þann trúarstyrk sem Guð hefur gefið ykkur. 4-5  Eins og líkami ykkar hefur marga limi, eins er líkami Krists. Öll erum við hlutar af honum, og ef hann á að vera heill, þá verðum við að standa saman, því að hvert um sig höfum við mismunandi verk að vinna. Þannig tilheyrum við hvert öðru, og hvert um sig þarf á öllum hinum að halda.
Guð hefur gefið okkur hverju og einu hæfileika til ákveðinna hluta. Ef Guð hefur gefið þér hæfileika til að spá – flytja öðrum boð frá sér – spáðu þá hvenær sem þú getur, eins oft og trú þín er nægilega sterk til að taka á móti boðum frá honum. Hafir þú fengið þá náðargjöf að þjóna öðrum, gerðu það þá vel. Ef þú kennir, gerðu það þá af kostgæfni. Sértu predikari, gættu þess þá að predikanir þínar séu þróttmiklar og öðrum til hjálpar. Ef Guð hefur falið þér ábyrgð á efnislegum gæðum, vertu þá gjafmildur og notaðu þau öðrum til gagns. Hafi Guð gefið þér stjórnunarhæfileika og sett þig sem leiðtoga yfir aðra, ræktu þá hlutverk þitt og ábyrgð af alúð. Þeir sem hafa það hlutverk að hugga og sýna miskunnsemi, geri það með gleði.
Hegðið ykkur sem kristnum sæmir
Talið ekki bara um að þið elskið hvert annað, heldur sýnið það í verki. Hatið hið illa en styðjið hið góða. 10 Elskið hvert annað með djúpri umhyggju og verið hvert öðru fyrra til að veita hinum virðingu. 11 Verið aldrei löt við vinnu, heldur þjónið Drottni með gleði og í krafti heilags anda. 12 Gleðjist yfir öllu því sem Guð hefur gefið ykkur. Sýnið þolinmæði í mótlæti og biðjið án afláts. 13 Takið þátt í að sinna efnislegum þörfum annarra og stundið gestrisni. 14 Blessið þá sem ofsækja ykkur vegna trúarinnar en bölvið þeim ekki. 15 Gleðjist með þeim sem eru glaðir og samhryggist þeim sem eru sorgbitnir. 16 Starfið saman af gleði. Þykist ekki vera vitrir og sækist ekki eftir vinsældum þeirra sem hátt eru settir. Leitið heldur samfélags við þá sem lægra eru settir og látið ykkur ekki detta í hug að þið vitið allt!
17 Gjaldið engum illt fyrir illt. Látið alla sjá að þið hafið hreinan skjöld. 18 Forðist allar deilur og lifið í sátt og samlyndi við alla menn, ef mögulegt er.
19 Kæru vinir, hefnið ykkar aldrei, heldur látið Guð um slíkt. Guð hefur sagt að hann muni endurgjalda hverjum um sig eins og hann á skilið. 20 Gefið heldur óvini ykkar mat sé hann svangur og drykk sé hann þyrstur og þá mun hann iðrast þess að hafa gert ykkur illt. 21 Láttu ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigraðu illt með góðu.