4
Ráðleggingar Páls
Ég hvet þig eindregið – og það frammi fyrir augliti Guðs og Jesú Krists, sem dæma mun lifendur og dauða, er hann kemur aftur til að stofna ríki sitt – að predika Guðs orð, í tíma og ótíma. Leiðbeindu fólki og ávítaðu það ef þörf krefur. Hvettu það til þess sem gott er og fræddu það af þolinmæði í orði Guðs.
Þetta segi ég, því að þeir tímar koma að fólk vill ekki hlusta á sannleikann, heldur kallar eftir fræðimönnum sem kenna því það sem það sjálft vill heyra. Fólk mun hafna Biblíunni, orði Guðs, og elta sínar eigin villukenningar. En þú, Tímóteus, láttu ekki haggast! Vertu ekki hræddur við að þurfa að þola illt vegna Drottins. Leiddu aðra til Krists og fullnaðu verkið, sem þér var falið að vinna.
Nú er svo komið að ég er á förum og þá get ég ekki lengur hjálpað þér. Ævi mín er á enda og brátt verð ég á leið til himna. Ég hef barist lengi og af kappi fyrir Drottin, og verið trúr. Nú er barátta mín á enda og hvíldin tekur við. Á himnum bíður mín kóróna, sem Drottinn, hinn réttláti dómari, mun gefa mér á degi endurkomu sinnar. En ég verð ekki sá eini sem hlýtur slíka kórónu, hana fá allir sem vaka og vænta endurkomu hans.
Lokaáminningar
Komdu eins fljótt og þú getur, 10 því Demas er farinn frá mér. Hann elskaði lífsgæðin og fór til Þessaloníku. Kreskes er farinn til Galatíu og Títus til Dalmatíu. 11 Lúkas er einn hjá mér. Taktu Markús með þér þegar þú kemur, því ég þarfnast hjálpar hans. 12 (Týkíkus er ekki lengur hér, ég sendi hann til Efesus) 13 Mundu eftir, þegar þú kemur, að taka með þér yfirhöfnina sem ég skildi eftir í Tróas hjá bróður Karpusi, og bækurnar – sérstaklega skinnbækurnar.
14 Alexander koparsmiður hefur unnið mér mikið tjón. Drottinn mun refsa honum. 15 Varaðu þig á honum, því að hann stóð gegn öllu sem við sögðum.
16 Þegar ég var leiddur fram fyrir dómarann í fyrsta skipti var enginn hér til að aðstoða mig, allir höfðu forðað sér. Ég vona að þeim verði ekki refsað fyrir það. 17 En Drottinn stóð með mér og veitti mér styrk til að tala svo allir heiðingjarnir fengju að heyra fagnaðarerindið. Hann forðaði mér líka frá því að vera kastað fyrir ljónin. 18 Drottinn mun vernda mig gegn öllu illu og leiða mig inn í sitt himneska ríki. Guði sé dýrð um aldir alda. Amen.
19 Skilaðu kveðju frá mér til Prisku og Akvílasar og þeirra sem búa á heimili Ónesífórusar. 20 Erastus varð eftir í Korintu en Trófímus skildi ég eftir veikan í Míletus.
21 Reyndu að komast hingað áður en vetur gengur í garð. Evbúlus biður að heilsa þér og sömuleiðis Púdes, Línus, Kládía og allir hinir. 22 Drottinn Jesús Kristur sé með anda þínum.
Páll