Títusarbréfið
1
Frá Páli, þjóni Guðs og sendiboða Jesú Krists – sendur til að efla trú þeirra sem Guð hefur útvalið og kenna þeim að þekkja sannleika Guðs. Sannleikur þessi vekur trú á Guð og leiðir til eilífs lífs. Þetta var óhagganleg fyrirætlun hans, áður en heimurinn varð til og það heit er enn í fullu gildi, því að Guð stendur við orð sín. En nú er rétti tíminn kominn, að hans mati, til að birta gleðifréttirnar og flytja þær öllum mönnum. Guð, frelsari okkar, trúði mér fyrir orði sínu og gaf mér skipun um að vinna að þessu verki.
Til Títusar, sonar míns í sameiginlegri trú.
Guð, faðirinn, og Kristur Jesús, frelsari okkar, blessi þig og veiti þér frið.
Val á prestum
Ég skildi þig eftir á Krít, til að gera það sem þurfti til eflingar söfnuðunum þar. Ég bað þig að útnefna presta og leiðtoga í hverri borg – menn sem fylgja fyrirmælum þeim sem ég gaf þér. Menn þessir verða að hafa gott orð á sér. Þeir verða að vera góðir eiginmenn og eiga trúuð, hlýðin og siðprúð börn.
Biskupar verða að vera óaðfinnanlegir, því að þeir eru þjónar Guðs. Þeir mega hvorki vera drambsamir né óþolinmóðir og ekki heldur drykkfelldir, óeirðagjarnir eða sólgnir í peninga. Þeir séu gestrisnir og elski allt sem gott er, grandvarir og heiðarlegir. Þeir verða að gæta hófs í hvívetna og hafa hreint hugarfar. Þeir skulu halda fast við sannleikann, sem þeim var kenndur, svo að þeir geti frætt aðra og hrakið kenningar andstæðinganna.
10 Margir neita að hlýða sannleikanum og þar á ég sérstaklega við þá sem segja að kristnir menn verði að hlýða lögum Gyðinga. Sú skoðun er út í hött. Hún hindrar að fólk sjái sannleikann, 11 og þess vegna verður að hrekja hana. Nú þegar hefur heilum fjölskyldum verið snúið frá náð Guðs. Þessir predikarar vilja fyrst og fremst komast yfir peninga fólks. 12 Maður úr þeirra eigin hópi, predikari frá Krít, hefur sagt um þá: „Þessir Kríteyingar eru allir lygarar! Þeir eru eins og latar skepnur, sem hugsa um það eitt að kýla vömbina!“ 13 Þetta er vissulega satt og þess vegna skaltu áminna hina kristnu alvarlega, svo að þeir verði heilbrigðir í trúnni, 14 og hafni þessum gyðingaævintýrum og fyrirmælum þeirra, sem snúið hafa baki við sannleikanum.
15 Sá sem hefur hreint hjarta sér hið bjarta og góða við alla hluti en sá vantrúaði sér engan mun góðs og ills. Hugarfar hans og samviska er flekkað, eins og hann sjálfur, og mótar allt sem hann sér og heyrir. 16 Þeir menn telja sig þekkja Guð, en á líferni þeirra sést að svo er ekki. Hugarfar þeirra er spillt, þeir eru óhlýðnir og koma engu góðu til vegar.