3
Áminning og viðvörun
Minntu hina kristnu á að hlýða yfirvöldum og embættismönnum, og vinna fúslega öll heiðarleg störf. Þeir eiga ekki að tala illa um nokkurn mann, heldur vera friðsamir, sanngjarnir og hógværir við alla. Eitt sinn vorum við líka óskynsöm, óhlýðin og létum leiða okkur í villu og þrældóm margs konar illra fýsna og girnda. Líf okkar var fullt af vonsku og öfund, og við hötuðum hvert annað.
En þegar gæska og kærleiki Guðs og frelsara okkar birtist, þá frelsaði hann okkur, ekki vegna þess hve góð við vorum, heldur vegna kærleika síns og miskunnar. Hann þvoði burt syndir okkar og endurfæddi okkur með heilögum anda. Hann úthellti anda sínum yfir okkur, og það ríkulega, vegna Jesú Krists, frelsara okkar. Þetta gerði hann til að geta úrskurðað okkur hrein og syndlaus í augum Guðs og gert okkur að erfingjum eilífs lífs. Þetta er sannleikur og þú skalt leggja áherslu á það allt, svo að kristnir menn kappkosti að stunda góð verk, því að það er ekki aðeins rétt, heldur einnig gagnlegt.
Láttu engan leiða þig út í heimskulegar rökræður um einskisnýta hluti. Forðastu deilur og þras um lög Gyðinga, slíkt borgar sig ekki og er aðeins til tjóns. 10 Sá sem veldur deilum og klofningi á meðal ykkar, skal áminntur einu sinni eða tvisvar ef þörf er á. Ef það dugar ekki, skuluð þið slíta sambandi við hann, 11 því að sá maður metur hlutina ranglega og syndgar af ásettu ráði. Hann er sjálfdæmdur.
12 Ég er að hugsa um að senda til þín Artemas eða Týkíkus, og þegar annar hvor þeirra kemur, skaltu reyna að hitta mig í Nikópólis, því að þar ætla ég að vera í vetur. 13 Gerðu allt sem þú getur til að aðstoða Senas lögfræðing og Apollós á ferð þeirra, og gættu þess að þá vanti ekki neitt. 14 Okkar menn verða að læra að gera öðrum gott, svo að líf þeirra skili árangri.
15 Allir sem hér eru, biðja að heilsa. Skilaðu kveðju til allra kristnu vinanna sem hjá þér eru. Blessun Guðs sé með ykkur öllum.
Páll