34
1-2  Ég vil lofa Drottin öllum stundum, vegsama hann seint og snemma. Ég hrósa mér af Drottni. Hinir hógværu hlusta og öðlast nýjan kjark. Lofið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.
Ég hrópaði til hans og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því sem ég hræddist. Lítið til hans og gleðjist og þið munuð ekki verða til skammar.
Ég var vesæll og aumur, en ég hrópaði til Drottins. Drottinn heyrði hróp mitt og frelsaði frá öllu því sem ég hræddist. Engill Drottins stendur vörð um þá sem óttast hann, og hann bjargar þeim.
Finndu og sjáðu hve Guð er góður! Sæll er sá sem leitar hælis hjá honum. 10 Treystið Drottni og sýnið honum lotningu – óttist hann – því að þeir sem óttast hann líða engan skort. 11 Ung ljón búa við skort en þeir sem leita Drottins fara einskis góðs á mis.
12 Börnin góð, komið og ég mun kenna ykkur að óttast Drottin. Það er mikilvægt. 13 Viljið þið lifa langa og góða ævi? 14 Gætið þá tungu ykkar! Segið aldrei ósatt orð. 15 Haldið ykkur frá öllu illu og ástundið það sem gott er. Reynið að lifa í sátt við aðra menn og keppið eftir friði.
16 Því að augu Drottins hvíla á hinum réttlátu og hann hlustar eftir bænum þeirra. 17 En öllum óguðlegum mun Drottinn eyða og afmá minningu þeirra af jörðinni. 18 Þegar réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn og frelsar þá úr nauðum. 19 Já, Drottinn er nálægur öllum þeim sem hafa auðmjúkt hjarta. Hann frelsar þá sem í einlægni og auðmýkt iðrast synda sinna. 20 Góður maður kemst oft í vanda – fær sinn skammt af mótlæti – en Drottinn á lausn við öllu slíku. 21 Jafnvel gegn slysum verndar Drottinn hann.
22 Ógæfan eltir og drepur óguðlegan mann og þeir sem hata réttláta bíða síns dóms. 23 En Drottinn frelsar líf þjóna sinna. Enginn sem leitar hælis hjá honum verður dæmdur sekur.