35
Drottinn, farðu gegn þeim sem ásækja mig. Berst þú við þá sem berjast gegn mér. Klæddu þig brynju, taktu fram skjöld og verndaðu mig. Lyftu spjóti mér til varnar, því að óvinir mínir nálgast. Segðu við mig: „Ég bjarga þér!“ Láttu þá verða til skammar sem ofsækja mig. Snúðu þeim frá og ruglaðu þá í ríminu! Feyktu þeim burt eins og laufum í vindi. Engill þinn varpi þeim um koll. Gerðu veg þeirra myrkan og hálan er engill þinn eltir þá.
Því að þótt ég gerði þeim ekkert illt, lögðu þeir fyrir mig gildru og grófu mér gröf. Láttu eyðingu koma yfir þá þegar þeir eiga þess síst von. Þeir falli á eigin bragði og tortímist.
En ég mun fagna í Drottni. Hann mun frelsa mig! 10 Ég lofa hann af öllu hjarta. Hver er vörn lítilmagnans nema hann? Hver annar en hann verndar hinn veika og þurfandi gegn ofbeldismönnunum sem ræna og rupla.
11 Slíkir menn eru ljúgvottar. Þeir ásaka mig um hluti sem ég hef aldrei heyrt. 12 Ég gerði þeim gott eitt, en þeir launa mér með illu. Ég er að dauða kominn. 13 Þegar þeir lágu sjúkir klæddist ég sorgarbúningi og var dapur. Ég fastaði – neitaði mér um mat – og bað í einlægni fyrir heilsu þeirra. 14 Ég var harmandi, eins og móðir mín, vinur eða bróðir væru sjúk og að dauða komin. 15 En nú gleðjast þeir yfir óförum mínum. Þeir koma saman til að baktala mig – jafnvel ókunnugir og útlendingar eru í þeirra hópi. 16 Þeir ala á illsku, formæla mér og hæða mig.
17 Drottinn, hve lengi ætlar þú að horfa á aðgerðalaus?
Gríptu inn í og bjargaðu mér, því að ég er einmana og þessir vargar bíða færis. 18 Frelsaðu mig og þá mun ég þakka þér í áheyrn alls safnaðarins, vegsama þig meðal fjölda fólks.
19 Láttu þá ekki fá sigur sem ráðast gegn mér án minnsta tilefnis. Láttu mig ekki falla, því það mundi gleðja þá mjög.
20 Þeir tala hvorki um frið, né það að gera gott, nei, heldur brugga þeir saklausum mönnum launráð. 21 Þeir hafa hátt og segja mig beita ranglæti. „Já!“ segja þeir, „við sáum það með eigin augum!“ 22 En Drottinn þekkir málið betur en nokkur annar. Gríptu inn í! Skildu mig ekki eftir einan og yfirgefinn!
23 Stígðu fram, Drottinn, Guð minn! Láttu mig ná rétti mínum. 24 Þú ert réttlátur og þekkir málið. Lýstu yfir sakleysi mínu. Láttu ekki óvini mína hlakka yfir ógæfu minni.
25 Láttu þá ekki segja: „Gott! Það fór eins og við óskuðum! Loksins tókst okkur að gera út af við hann!“ 26 Láttu þá blygðast sín. Láttu þá sem sýna mér hroka og fagna yfir óförum mínum, sjálfa þola skömm og svívirðing. 27 Láttu þá sem óska mér blessunar sjá góða daga. Þeir hrópi: „Mikill er Drottinn sem gerir vel við þjón sinn!“
28 Ég vil segja öllum frá réttlæti Drottins og lofa hann liðlangan daginn.